Skip to content

Gjafabréf

Gefðu myndatöku í stúdíóinu.

Upplifun í gjöf: einkamyndataka í víkingaklæðum fyrir einn til átta gesti. Ekta klæðnaður og vopn fylgja og allar myndirnar eru innifaldar og afhentar samdægurs. Bættu við persónulegri kveðju; að kaupum loknum geturðu sótt gjafabréfið strax og færð það líka sent í tölvupósti sem PDF-skjal.

16.000 kr. á mann, sama verð fyrir alla aldurshópa.

Prentaða kortið. Þykkur kremlitaður pappír, skreytt umslag og rautt lakkinnsigli. Sent ókeypis með Póstinum innanlands; PDF-skjalið berst strax.

English

Prentað sýnishorn af gjafabréfi, aflangt kort með rauðum rúnaramma, stendur fyrir framan kremlitað umslag þar sem MINK er pensilmálað með rauðum rúnum, innan um málaðan skjöld, járnhjálm og gæru

Gjafabréfið þitt

Gerðu gjöfina persónulega.

Hvort sem þetta er jólagjöf, afmælisgjöf eða gjöf af öðru tilefni – veldu fjölda gesta, skrifaðu á kortið ef þú vilt og sláðu inn netfang. Þú færð PDF-skjalið alltaf í tölvupósti og getur líka sent það beint á viðtakandann.

1 · Veldu fjölda gesta

16.000 kr. á mann, sama verð fyrir alla aldurshópa.

Fleiri en átta? Sendu okkur línu.

2 · Skrifaðu á kortið

Skrifaðu nafnið eins og það á að standa á kortinu, t.d. „Önnu“ eða „Jóns“.

Skrifaðu nafnið eins og það á að standa á kortinu, t.d. „Önnu“ eða „Jóni“.

Einfaldur texti, allt að fjórar línur á prentaða kortinu.0 / 280

3 · Afhending

Kvittunin og PDF-skjalið berast hingað.

Hvernig viltu fá gjafabréfið?

Þú færð PDF-skjalið strax í báðum tilvikum.

Prentað á þykkan kremlitaðan pappír, í skreyttu umslagi sem lokað er með rauðu lakkinnsigli, og sent þér að kostnaðarlausu innanlands.

4 · Greiðsla

Eða greiddu með korti

Veldu fjölda gesta – þá geturðu greitt hér með einum smelli eða með korti hér fyrir neðan.

Fæst ekki endurgreitt. Gildir í 18 mánuði – bóka þarf í síðasta lagi þann dag sem stendur á kortinu, en myndatakan sjálf má fara fram síðar. Skilmálar (á ensku).

Hagnýt atriði

Svona virkar gjafabréfið.

Prentaða kortið
Veldu „Prentað kort, sent með Póstinum“ og við prentum gjafabréfið á þykkan kremlitaðan pappír, setjum það í skreytt umslag sem við lokum með rauðu lakkinnsigli og sendum þér það að kostnaðarlausu á heimilisfang á Íslandi. PDF-skjalið berst þér samt strax svo gjöfin kemur aldrei of seint. Ef þú vilt frekar sækja prentaða kortið í stúdíóið skaltu senda okkur línu.
18 mánuðir til að bóka
Hvert nýtt gjafabréf gildir í 18 mánuði. Bóka þarf í síðasta lagi þann dag sem stendur á kortinu, en myndatakan sjálf má fara fram síðar, innan þess tímabils sem opið er fyrir bókanir.
Gestir, ekki inneign í krónum
Gjafabréfið gildir fyrir þann fjölda gesta sem á því stendur. Ef bókað er fyrir fleiri gengur gjafabréfið upp í bókunina og aðeins er greitt fyrir þá sem bætast við. Ef bókað er fyrir færri standa ónotuð pláss áfram á kóðanum.
Breytingar og afbókanir
Gjafabréf fást ekki endurgreidd. Um bókun sem gerð er með gjafabréfi gildir 24 klukkustunda reglan. Ef afbókað er eða gestum fækkað innan þeirra marka fara plássin aftur á sama kóða, með upphaflegum gildistíma.
Afhending
Þú getur sótt PDF-skjalið strax og færð það alltaf í tölvupósti. Hakaðu við „Senda líka beint á viðtakanda núna“ til að senda viðtakandanum það um leið. Ekki er hægt að tímasetja sendinguna.
Staða og gildistími
Sjáðu hve mörg pláss eru eftir og hvenær gjafabréfið rennur út á mink.is/gift-cards/check/ (síðan er á ensku). Þar birtast aldrei nöfn, netföng eða kveðjan þín.
Starfsmannagjafir og jólagjafir fyrirtækja
Viltu gefa starfsfólki eða viðskiptavinum myndatöku í jólagjöf eða af öðru tilefni? Við veitum 30% magnafslátt þegar pöntuð eru tíu gjafabréf eða fleiri. Ef þú vilt mörg gjafabréf, pantar fyrir fyrirtæki eða ef gjöfin er fyrir fleiri en átta gesti skaltu senda okkur línu. Við getum sent fyrirtækinu reikning. Aðeins er hægt að nota einn gjafakóða í hverri bókun; sendu okkur línu ef sameina á gjafabréf.