Fara beint í efni
Hvítskeggjaður maður í hringabrynju lyftir sverði og öskrar undir hjartarhornum á vegg stúdíósins

Fyrirtæki og viðburðir

Fyrir fyrirtæki, viðburði og stærri hópa.

Meira en hefðbundin myndataka í stúdíóinu: hópefli, árshátíð, stórafmæli eða einkakvöld á völdum stað, innan dyra sem utan. Við opnum stúdíóið fyrir hópinn þinn – eða pökkum niður víkingaklæðum, vopnum og myndavél og mætum á staðinn.

Fjórar konur í víkingaklæðum með axir og sverð standa fyrir framan gærur og hauskúpur á vegg stúdíósins

Vinnustaðir

Hópefli, árshátíðir og vinnustaðakvöld.

Utan um myndatökuna getum við sett saman heila kvöldstund: víkinga með sverðasýningar, axarkast, sögustund og gripi af verkstæðinu. Við höfum um árabil tekið þátt í viðburðum íslenskra fyrirtækja – árshátíðum, sumarhátíðum, hópefli og afmælum – auk kvöldviðburða í tengslum við ráðstefnur og hvataferðir.

Í stúdíóinu eða á staðnum hjá ykkur – allt frá fámennum hópi upp í rúmlega hundrað manns. Sama myndataka er líka tilvalin í starfsmannagjöf eða gjöf til viðskiptavina.

Sendu fyrirspurn fyrir vinnustaðinn

Við getum sent fyrirtækinu reikning og veitum 30% magnafslátt af tíu gjafabréfum eða fleiri – sendu okkur línu til að nýta hann. Nánar á gjafabréfasíðunni.

Einkakvöld og VIP

Einkakvöld á völdum stað.

Hver myndataka hjá okkur er þegar einkamyndataka – en hér er gengið skrefi lengra. Stúdíóið er þá tekið frá eingöngu fyrir hópinn þinn, líka utan hefðbundins opnunartíma ef þörf krefur, og tímasetningin löguð að kvöldverðarborði, flugi eða þéttri dagskrá sem ekki má hnika til.

Við mætum líka á einkastaði: í veiðihús, svítu eða heimahús, innan dyra sem utan. Víkingaklæði og vopn eru valin fyrir fram, rýmið sett upp fyrir þá mynd sem þú sérð fyrir þér og myndatakan unnin út frá henni.

Hótel, ferðaskrifstofur og móttökustjórar bóka í gegnum samstarfssíðuna okkar (á ensku). Allt annað: sendu okkur línu í fullum trúnaði.

Óskaðu eftir einkatilboði
Maður í brynju og með hjálm stendur fyrir aftan rauðhærða konu; bæði halda á vopnum fyrir framan vegg stúdíósins

Í stúdíóinu eða á staðnum

Fleiri en átta? Sendu okkur línu.

Á vefnum er hægt að bóka fyrir allt að átta gesti, 16.000 kr. á mann. Ef hópurinn er stærri – vinahópur, saumaklúbbur, stórafmæli, ættarmót eða heill vinnustaður – láttu okkur vita hve mörg þið eruð og hvaða dag þið hafið í huga, og við skipuleggjum þetta með þér.

Í stúdíóinu á Laugavegi 11 tökum við stærri hópa inn í hollum svo klæðnaður, vopnaval og myndataka ganga lipurlega fyrir sig án hlés. Á staðnum hjá ykkur mætir sama teymi með víkingaklæði, vopn og allan búnað, og myndirnar skila sér alveg eins og í stúdíóinu – allar innifaldar og afhentar samdægurs. Við höfum sinnt fyrirtækjum með rúmlega hundrað gesti á báða vegu.

Sendu fyrirspurn

Fjöldi gesta, dagsetning og tilefni. Við reynum að svara innan sólarhrings.

Utandyra

Út í náttúruna.

Sama myndataka undir beru lofti – í birkiskógi, í svartri fjöru eða á lóðinni þar sem viðburðurinn fer fram. Víkingaklæði, vopn og myndavél ferðast með okkur; birtan kemur frá landinu sjálfu. Verðið miðast við staðsetningu, fjölda gesta og dag.

Spurðu um myndatöku utandyra
Ungur bogmaður í rauðum kyrtli og skikkju spennir boga í mosavöxnum birkiskógi
Náttrún völva við borð sitt með rúnasteinum, kertum og jurtum – hún heldur steini upp að ljósinu og er með fjaðurskreyttan staf í hinni hendinni

Náttrún

Völvan.

Náttrún er íslensk völva, miðill og rúnalesari með djúpar rætur í íslenskri dulspekihefð. Hún hefur um árabil unnið með okkur á viðburðum og við sérstök tilefni, bæði í eigin persónu í Reykjavík og á netinu.

Rúnalestur
Persónulegur lestur í rúnirnar, annaðhvort fyrir einn gest eða fyrir hvern á fætur öðrum í hópi.
Spádómar
Spáð að gömlum sið, hvort sem er við borð eða á meðal gesta í rýminu.
Andlegir einkatímar
Kyrrlát stund fyrir einn gest í einu, bókuð með fyrirvara.

Engin föst verðskrá er í gildi: stakir tímar eru bókaðir beint hjá henni, en vinna á viðburðum er verðlögð með kvöldinu í heild.

Fyrir einn til átta gesti er verðið 16.000 kr. á mann fyrir alla aldurshópa og hægt að bóka einkamyndatöku beint á vefnum.

Hótel, ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur geta bókað í gegnum samstarfssíðuna okkar (á ensku).